EINANGRUNARGLER

EINANGRUNARGLER

Í almennu tali er talað um rúðu, gler eða glugga þegar um einangrunargler er að ræða, sem er gler sem er notað utanhúss til að halda hljóði úti og hita inni

Við ákvörðun á vali einangrunarglers þarf að hafa ýmsa þætti í huga, t.a.m:

  • Í hvaða hæð frá gólfi á glerið að vera – einangrunargildi og öryggisþættir
  • Hversu mikil hljóðeinangrun þarf að vera – ytri umhverfisþættir
  • Þarf sólvörn og/eða litað gler

TVÖFALT EINANGRUNARGLER

Tvöfalt einangrunargler er staðlað á Íslandi, en þá eru tvær rúður settar saman

Tvöfalt einangrunargler minnkar orkutap bygginga. Áhugavert er að bera saman orkutap glerja, en það er mismunandi eftir glertegundum og samsetningum. Stærsti munurinn felst í eiginleikum glerhúðunarinnar, þar á eftir er hægt að minnka orkutap rúðunnar með auknu millibili glerja og gasfyllingu

Stöðugar framfarir eiga sér stað í framleiðslu glerja og er nýjasta viðbótin hjá okkur Top N+ einangrunarglerið sem segja má að slái öllu við. Top N+ gler er með með einangrunargildið 1,3 og er því orkutapið 56% minna en í hefðbundnu tvöföldu gleri

GOTT AÐ HAFA Í HUGA

Þó húshitunarkostnaður sé lægri hér á landi getur það borgað sig að skipta út gömlu gleri fyrir nýtt ef það verður til þess að lækka orkureikninginn, ekki síst í þeim landshlutum þar sem kynnt er með rafmagni

Helstu tegundir einangrunarglers:


  • TopN + Einangrunargler
  • Litað gler Sólvarnargler og einangrunargler
  • Sunergy Sólvarnargler og einangrunargler
  • Energy N Sólvarnargler og einangrunargler
  • Stopray Vision 50 Sólvarnargler og einangrunargler

Hægt er fá einangrunargler með hljóðvörn, öryggisgleri, sandblæstri o.fl.

Fáið nánari upplýsingar hjá sölumanni

Fá tilboð