GLER

GLER

Allt samsett gler sem Kambar selur með gasfyllingu á milli glerskífa

Það gas sem algengast er að nota er Argon. Gasfylling eykur einangrunargildi venjulegs verksmiðjuglers frá okkur um allt að 20%

Gott einangrunargler lækkar hitakostnað og eykur þægindi íbúa innandyra

Best er að U-gildið – W/m2 K – sé sem lægst því það segir til um orkutapið út um einn fermetra einangrunarglers

Við bjóðum upp á allar helstu lausnir sem snúa að gleri og glerlausnum

FLOTGLER

Grunneiginleikar flotglers eru gegnsæi, harka, stöðugleiki og vörn

Stöðug tækniþróun hefur gert gler að fjölhæfu og mikilvægu byggingarefni

MARGVÍSLEGT NOTAGILDI

Flotgler hefur margvíslegt notagildi og er notað bæði innanhúss og utan í heimahúsum, á skrifstofum, í verslunum, á hótelum, á veitingastöðum o.fl

ÝMSIR MÖGULEIKAR & ÚTFÆRSLUR

Flotgler getur verið glært gegnsætt, litað, hálfgegnsætt eða ógegnsætt

Flotgler getur að auki afmarkað rými, opnað þau og stækkað – sem hefur ákveðinn léttleika og sérstaka tilfinningu í umgengni

Flotgler er notað sem glerhurðir, glersturtuklefar, glerskilveggir, glerhandrið, glergólf, glerþrep, glerhillur, listaverk o.fl.