HLJÓÐVARNARGLER
TAKMÖRKUN Á HLJÓÐI AÐ UTAN
Hljóðvarnargler er hljóðeinangrandi gler sem dregur úr hljóði í nærumhverfi og hentar vel í húsnæði nálægt umferðargötum eða öðrum hávaðasömum stöðum
TAKMÖRKUN Á HLJÓÐI AÐ INNAN
Hljóðvarnargler hentar einnig vel innandyra þar sem að fólk vill halda birtu og opnu flæði en jafnframt takmarka hávaða innan rýmis
ÝMSAR ÚTFÆRSLUR
Í boði eru ýmsar útfærslur af hljóðvarnargleri og leiðbeiningar varðandi val eftir umhverfi, aðstæðum og þörfum
Grunntegundin er einfalt hljóðvarnargler sem samanstendur af tveimur glerskífum með filmu á milli en gæði hljóðeinangrunarinnar má bæta með einu eða fleirum af eftirtöldum atriðum:
- Auka loftbilið milli glerskífanna
- Nota misþykkt gler
- Nota samlímt hljóðvarnargler með hljóðvarnarfilmu
- Nota réttar þéttingar og tvöfalda þéttilista í gluggum
Nánari upplýsingar
Hafið samband við sölumann fyrir frekari upplýsingar