STERKARI SAMAN

Kambar leggja alla áherslu á að halda þessari ómetanlegu íslensku sérfræðiþekkingu innan landsteinanna. Þannig sköpum við störf, höldum virðisaukningunni innanlands og tryggjum að við getum áfram brugðist hratt við og átt í mjög góðu samtali við viðskiptavininn. Því á endanum snýst þetta allt um hann. Viðskiptavinurinn á skilið að geta valið íslenskar gæðavörur sem framleiddar eru með íslenskar aðstæður í huga.

Við búum yfir framúrskarandi íslensku hugviti og höfum áratugalanga reynslu af því að framleiða gæðavörur sem standast kröfuharðar íslenskar aðstæður. Sú þekking og handverk má ekki tapast úr íslenskum iðnaði.

Kambar eru ein sterk heild, sameinuð úr fjórum rótgrónum íslenskum framleiðslu-fyrirtækjum. Í sameiningu myndum við einn stærsta framleiðanda landsins á gluggum, hurðum, gleri og svalahandriðum fyrir íslenskar aðstæður.

BÖRKUR

TRÉSMIÐJA

Trésmiðjan Börkur var stofnuð á Akureyri árið 1970 og hefur alla tíð lagt áherslu á smíði glugga og hurða í hæsta gæðaflokki.

Á undanförnum árum hefur Börkur sótt í sig veðrið sem framleiðslufyrirtæki og framleiðslugetan vaxið jafnt og þétt, samhliða öflugri vöruþróun innan fyrirtækisins.

Börkur leggur metnað sinn og atorku í að búa til vandaðar vörur sem eru fyrsti valkostur við íslenskar aðstæður.

GLUGGASMIÐJAN

SELFOSS

Gluggasmiðjan Selfoss var stofnuð árið 1960 og á sér ríka sögu þekkingar og nýsköpunar.

Fyrirtækið hefur alla tíð þjónustað íslenskan byggingariðnað með hágæðaframleiðslu og þar voru þróaðar gluggalausnir fyrir séríslenskar aðstæður í uppsteyptum húsum.

SAMVERK

GLERVERKSMIÐJA

Glerverksmiðjan Samverk var stofnuð árið 1969 af 8 heimamönnum í Rangárþingi til að framleiða einangrunargler. Samverk er elsta starfandi glerverksmiðja landsins og býr að áratugalangri reynslu og þekkingu á öllu sem viðkemur glerframleiðslu.

Samverk sérframleiðir gler fyrir sína viðskiptavini og það sem einkennir þjónustu fyrirtækisins er að það annast allt ferlið. Samverk mælir fyrir glerinu, framleiðir það og setur upp glerið fyrir þig.

SVEINATUNGA

SVALAHANDRIÐ

Sveinatunga var stofnuð árið 1982 og fagnar því 40 ára afmæli á þessu ári.

Undanfarin ár hefur fyrirtækið sérhæft sig í annars vegar hönnun og smíði svalahandriða og glerkápa á svalaganga hins vegar, úr sérframleiddum álprófílum og gleri.

Fyrirtækið er leiðandi í hönnun, smíði og uppsetningu á sínu sviði og hefur meðal annars hannað og teiknað sína eigin prófíla úr áli, sérstaklega til nota við íslenskar aðstæður.

VIÐ LOKUM HÚSINU FYRIR ÞIG

Hjá Kömbum færð þú allt sem þú þarft til að loka húsinu og getur treyst því að það haldist lokað. Við framleiðum glugga, gler, hurðir og svalahandrið í miklu úrvali og erum eini framleiðandi landsins á hertu gleri.
Allar vörurnar frá Kömbum eiga það sammerkt að vera sérstaklega hannaðar og smíðaðar til að þola íslenskar veðuraðstæður, sem eru með þeim erfiðustu í heim.

Gluggarnir, glerið, hurðirnar, svalahandriðin og allar hinar gæðavörurnar í vörulínunni okkar eru einstakar á heimsvísu. Og ástæðan fyrir því er einföld:
Þær verða að vera það og við sættum okkur ekki við neitt minna!

„Vörurnar okkar eru einstakar á heimsvísu.“.